Collection: Vatnslitapappír

Pappírinn hefur mikið að segja um hvernig vatnslitirnir flæða, blandast og þorna. Hér finnur þú vatnslitapappír í blokkum, skissubókum, örkum og á rúllum, ásamt póstkortum sem gaman er að mála og senda áfram. Í úrvalinu er meðal annars Fabriano Artistico úr 100% bómull.Veldu áferð sem hentar þínu handbragði: sléttan Hot Press pappír, kaldpressaðan Cold Press með fíngerðri áferð eða grófari Rough pappír. Mismunandi stærðir og pappírsþyngdir gefa þér svigrúm til að finna pappír fyrir allt frá litlum ferðaskissum til stærri vatnslitamynda.

Við hjálpum þér gjarnan að velja pappír og áferð sem hentar því sem þig langar að mála.

Vatnslitapappír