Collection: Blýantar og grafít

Frá fyrstu skissu til nákvæmrar skyggingar - hér finnurðu teikniblýanta, blýantasett og grafít í fjölbreyttu formi. Veldu blýant fyrir fínar línur og smáatriði eða prófaðu grafítstangir og hnoðanlegt grafít fyrir stærri fleti og frjálsari teikningu.

Vatnsleysanlegt grafít frá ArtGraf býður upp á enn fleiri möguleika. Notaðu það þurrt eða bættu við vatni og pensli til að mýkja línurnar og skapa gráa tóna sem minna á vatnslitamálun. Úrval fyrir þau sem njóta þess að teikna, skyggja og prófa sig áfram.