Gjafir fyrir börn og unglinga

Gjafahugmyndir · Val starfsfólks

Gjafir fyrir börn og unglinga

Fyrir litlar hendur og stórar hugmyndir. Við höfum valið liti, áhöld og verkefni fyrir börn sem elska að skapa — og unglinga sem eru að finna sína eigin leið.

Finndu gjöf við hæfi
Litríkt Molotow One4All pennasett og skissubók í versluninni
Gjafir sem gefa hugmyndunum pláss.

Fyrir börn á skólaaldri

Yngri listamenn

Sum börn teikna persónur, önnur fylla blaðið af lit. Hér eru gjafir sem gefa þeim færi á að halda áfram að gera það sem þeim finnst skemmtilegt — og prófa eitthvað nýtt.

Teikna, lita og skyggja

Fleiri litir fyrir stórar hugmyndir

Renesans Natural · 48 litir

Fjörutíu og átta litblýantar gefa nóg svigrúm til að lita, skyggja og prófa nýjar litasamsetningar. Mjúkir litirnir henta vel til að vinna í lögum og málmboxið heldur þeim saman milli teiknistunda.

Fyrir: börn sem hafa alltaf eitthvað að teikna.

Frá blýanti yfir í vatnslit

Ein mynd, tvær leiðir

Renesans Acquerello · 24 vatnslitablýantar

Tuttugu og fjórir vatnslitablýantar í fallegu málmboxi. Fyrst er teiknað með blýöntunum. Síðan má fara yfir litinn með rökum pensli og sjá hann leysast upp í vatnslit. Skemmtileg leið til að prófa málun með áhöldum sem eru þegar kunnugleg.

Fyrir: forvitna teiknara sem langar að prófa vatnsliti.

Auðvelt að blanda litum

Mjúkir litir, sterkur svipur

Sennelier Discovery · 6 olíupastellitir

Olíupastellitirnir eru mjúkir og kremkenndir og gefa mikinn lit með lítilli fyrirhöfn. Það er auðvelt að leggja litina hvern yfir annan og blanda þeim saman á blaðinu. Sex litir geta orðið að ótal nýjum litbrigðum.

Fyrir: börn sem vilja prófa áferð og sterka liti.

Fyrstu skrefin í málun

Fimm túpur, ótal litablöndur

Schmincke Akademie Gouache · 5 × 20 ml

Þekjandi gouache-litir með mattri áferð. Settið inniheldur þrjá grunnliti ásamt hvítum og svörtum, svo hægt er að æfa sig í að blanda eigin liti. Gott byrjunarsett fyrir börn sem vilja mála með pensli.

Fyrir: unga málara sem vilja kynnast litablöndun.

Góð viðbót við litagjöf

Pappír fyrir alls konar hugmyndir

MixMedia · Fabriano pappír · 250 g/m² · 25 blaðsíður

Þykkur pappír sem gefur börnum frelsi til að teikna, mála og blanda ólíkum efnum á sömu síðu. Hentar vel með litblýöntum, pastellitum, vatnslitablýöntum og gouache.

Blokkirnar fást í A5, A4 og A3. Veldu litla blokk til að taka með eða stærri fyrir hugmyndir sem þurfa meira pláss.

Frá 1.799 kr.
Velja stærð

Fyrir unglinga með eigin hugmyndir

Meira svigrúm til að prófa

Myndasögur, tilraunir með grafít, litsterkar teikningar eða örsmáar fígúrur. Byrjaðu á áhugamálinu og veldu áhöld sem gefa því meira pláss.

Fyrir litsterkar hugmyndir

Pennar og bók sem passa saman

Molotow One4All · 6 akrýlpennar og A5 skissubók

Gjöf sem er tilbúin til notkunar: sex þekjandi akrýlpennar og skissubók með 205 g/m² pappír úr One4All línunni. Fyrir persónur, letur, mynstur og teikningar þar sem liturinn má taka pláss.

Þekkja þau Posca? One4All eru líka vatnsbundnir málningarpennar með góða þekju. Einn helsti kostur One4All er að hægt er að fylla á þá og skipta um odda, svo hægt er að nota sömu pennana áfram.

Fyrir tússpennateiknarann

Litir sem flæða vel á blaðið

Molotow Sketcher · 12 litir

Vatnsbundnir tússpennar fyrir litríkar persónur, myndasögur og stór lituð svæði. Pensiloddur og breiður oddur gefa ólíkar línur, og hægt er að skipta um litahylki þegar þau tæmast. Fabriano tússpennablokk er góð viðbót við settið.

Fyrir: unglinga sem nota tússpenna við hvert tækifæri.

10.999 kr.
Skoða Sketcher

Góð viðbót við Sketcher

Pappír sem passar við pennana

Fabriano 1264 Marker Pad · 70 g/m² · 100 blaðsíður

Sléttur tússpennapappír fyrir skissur, myndasögur og litríkar teikningar. Hentar bæði vatnsbundnum og alkóhólbundnum tússpennum og er með vörn gegn því að blekið smjúgi í gegn. Fæst í A4 og A3.

Fyrir: unglinga sem vilja fá meira út úr tússpennunum sínum.

Frá 4.799 kr.
Velja tússpennablokk

Myndasögur, skissur og smáatriði

Litlu línurnar skipta máli

Renesans Outline · 6 fínlínupennar

Svartir fínlínupennar með mismunandi oddum gefa teikningum skýrar útlínur og fína áferð. Góð viðbót við tússpenna eða litblýanta fyrir þau sem hafa gaman af myndasögum, mynstrum og nákvæmum teikningum.

Fyrir: teiknara sem stoppa ekki við útlínurnar.

Stærri gjöf fyrir tilraunaglaða

Fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt

Viarco Experience · ArtGraf tilraunasett

Litakubbar, vatnsleysanlegt grafít, hnoðanlegt grafít og óvenjuleg teikniáhöld bjóða upp á margar leiðir til að vinna. Prófa má bæði þurrar línur og blautar strokur og sjá hvað gerist þegar efnin mætast.

Fyrir: unglinga sem njóta þess að prófa sig áfram með ólík efni.

Mjúk áferð og litablöndun

Málverk með fingrunum

Sennelier · 6 hálfir þurrpastellitir

Mjúkir þurrpastellitir gefa ríkan lit og má blanda saman á pappírnum með fingrunum eða blandstaut. Litir þessa litla setts eru innblásnir af vatnaliljum Monets. Falleg leið til að prófa nýja aðferð við myndgerð.

Fyrir: unglinga sem hafa gaman af málun og litablöndun.

Warhammer, módel og smáfígúrur

Fyrir allra minnstu smáatriðin

Borciani & Bonazzi · Evil Eyes Armory · 3 penslar

Þegar áhugamálið snýst um örsmáar fígúrur skiptir góður pensill miklu máli. Þetta þriggja pensla sett er ætlað smáfígúrumálun og hentar vel fyrir brynjur, andlit og önnur smáatriði sem kalla á nákvæmni.

Fyrir: Warhammer-áhugafólk og þau sem mála módel.

Fyrir eldri unglinga · Stærri verk

Þegar blaðið verður of lítið

Molotow Premium · 400 ml spreybrúsar

Spreymálning opnar fyrir stærri fleti, stensla og frjálslegar tilraunir. Fyrir eldri unglinga sem hafa áhuga á götulist eða vilja vinna stórt á eigin málningarflöt.

Notist undir handleiðslu fullorðinna, utandyra með viðeigandi öndunarvörn og samkvæmt leiðbeiningum framleiðanda. Spreybrúsar eru aðeins afhentir í verslun og eru ekki sendir.

Frá 1.949 kr.
Velja sprey

Lítill heimur, mikið ímyndunarafl

Sam & Julia fyrir þau yngstu

Fyrir yngstu fjölskyldumeðlimina byrjar ævintýrið með mjúkri mús og bók til að skoða saman. Þegar börnin eldast má bæta við föndri og byggja þeirra eigin smáheim.

Frá 18 mánaða aldri

Julia kemur í heimsókn

Sam & Julia · mjúk músabrúða

Lítil, mjúk vinkona sem getur fylgt með í sögustund, heimsóknir og ímyndunarleik. Góð fyrsta gjöf úr heimi Sam & Julia, áður en smáhúsin og föndrið taka við.

Fyrir: yngstu fjölskyldumeðlimina.

2.599 kr.
Skoða Juliu

Skoðum saman

Svo margt að finna

The Mouse Mansion · Big Book of Look & Find

Herbergin í Músahúsinu eru full af smáatriðum til að leita að og ræða um. Bók til að skoða saman og uppgötva eitthvað nýtt í hvert sinn. Bókin er á ensku.

Fyrir: forvitin börn og sameiginlegar sögustundir.

3.529 kr.
Skoða bókina

Frá 6 ára aldri

Byggjum lítið herbergi

Sam & Julia · svefnherbergispakki

Fyrir aðeins eldri hendur: pappaherbergi, viðarhúsgögn og smáhlutir úr pappír sem hægt er að setja saman og skreyta. Skemmtilegt verkefni til að vinna að saman. Músabrúða, málning og lím fylgja ekki með.

Fyrir: börn sem hafa gaman af föndri og smáheimum.