Collection: Daniel Smith vatnslitir

Daniel Smith vatnslitir bjóða upp á fjölbreytta litatóna og áferð fyrir allt frá fyrstu litaprufum til fullunninna málverka. Hér finnur þú Extra Fine og PrimaTek vatnsliti í 15 ml túpum, ásamt vatnslitasettum með grunnlitum og litavali listamanna.

PrimaTek-litirnir eru sérstaklega spennandi fyrir þau sem vilja prófa sig áfram með áferð. Litarefni úr náttúrulegum steinefnum gefa þeim ólíka eiginleika og kornun sem nýtur sín vel í landslagi og frjálslegum tilraunum. Með fáum vel völdum litum má skapa fjölbreytt blæbrigði og ólíka stemningu.

Heimir Snær, samstarfsmaður okkar og myndlistarmaður, málaði tvö ímynduð landslög með aðeins fimm PrimaTek-litum. Skoðaðu myndir Heimis af Mars og Venusi og kynntu þér litina fimm á blogginu okkar.

Daniel Smith vatnslitir