Collection: Olíulitir

Olíulitir frá Schmincke og Renesans fyrir allt frá fyrstu æfingum til stórra málverka. Olíumálning gefur þér tíma til að blanda liti á striganum, mýkja skil og vinna með áferð, hvort sem þú málar með pensli eða málningarhníf.

Hér finnur þú AKADEMIE og NORMA Professional frá Schmincke ásamt Oils for Art frá Renesans, í túpum og stærri umbúðum fyrir vinnustofuna. Veldu litina og stærðirnar sem henta þér, frá litlum túpum fyrir nýja tóna upp í 500 ml dósir af hvítum lit.

Notaðu grunnaðan striga, plötu eða pappír ætlaðan fyrir olíumálun. Ef þig langar að teikna beint með olíumálningu geturðu líka skoðað olíustangirnar okkar.

Olíulitir