Skip to product information
1 af 50

Schmincke

Schmincke HORADAM Supergranulating - vatnslitir, 15 ml

Schmincke HORADAM Supergranulating - vatnslitir, 15 ml

Söluverð 5,249 ISK
Söluverð Útsöluverð 5,249 ISK
Sale Uppselt
Skattur innifalinn. Shipping calculated at checkout.
Magn

Vatnslitir þar sem áferðin fær að njóta sín. HORADAM Supergranulating frá Schmincke sameina að minnsta kosti tvö kornandi litarefni í hverjum lit og skapa þannig sérstaklega áberandi kornun og fjölbreytt litbrigði.

Litarefnin hafa ólíka litblæi sem koma fram þegar málað er með þeim. Deep Sea Indigo sameinar til dæmis fjólublátt og grænt litarefni, en Glacier Brown brúnt og grænt. Útkoman er lifandi litaflötur þar sem bæði tónar og áferð geta komið á óvart.

Pappírinn og vatnsmagnið hafa áhrif á niðurstöðuna. Því grófari sem pappírinn er, þeim mun greinilegri verður kornunin. Litirnir bjóða því upp á skemmtilega möguleika í landslagsmálun, náttúrulegri áferð og frjálsum tilraunum.

Línan skiptist í átta þemu með fimm litum í hverju:

  • Deep Sea
  • Glacier
  • Galaxy
  • Forest
  • Tundra
  • Volcano
  • Shire
  • Desert

Litirnir koma í 15 ml túpum og hafa 4 eða 5 stjörnu ljósþol samkvæmt einkunnakerfi Schmincke. Flestir eru hálfgegnsæir eða hálfþekjandi. Þá má nota eina og sér eða með öðrum vatnslitum úr HORADAM AQUARELL- og AKADEMIE Aquarell-línunum.

Skoða litakort Schmincke HORADAM Supergranulating

1 total reviews

View full details