Schmincke
HORADAM® vatnslitasett - 12 hálfir kubbar
HORADAM® vatnslitasett - 12 hálfir kubbar
Couldn't load pickup availability
Þetta HORADAM® vatnslitasett frá Schmincke hefur verið í uppáhaldi hjá viðskiptavinum okkar allt frá opnun verslunarinnar. Í málmboxinu eru 12 hálfir kubbar með litavali sem er bæði góður grunnur og skemmtilegt að vinna áfram með.
Tveir gulir, tveir rauðir og tveir bláir litir gefa þér ólíka möguleika í litablöndun. Grænu litirnir og jarðlitirnir bæta svo við tónum sem auðvelt er að grípa til þegar þú málar landslag, fólk eða hversdagslegar skissur. Kubbarnir leysast auðveldlega upp aftur með vatni og Schmincke notar sömu litablöndu í kubbana og HORADAM® túpurnar, svo þú getur fyllt á litina þegar þeir klárast.
Litir í settinu: 215 Lemon Yellow, 224 Cadmium Yellow Light, 349 Cadmium Red Light, 353 Permanent Carmine, 494 Ultramarine Finest, 492 Prussian Blue, 519 Phthalo Green, 534 Permanent Green Olive, 655 Yellow Ochre, 649 English Venetian Red, 663 Sepia Brown og 780 Ivory Black.
Share
