Grafít í duftformi opnar fyrir fjölbreyttar aðferðir við teikningu og málun. ArtGraf vatnsleysanlegt grafítduft frá Viarco má nota þurrt til skyggingar eða með vatni til að skapa mjúka litafleti og flæðandi pensilför.
Þú getur bætt við vatni fyrir, á meðan eða eftir að grafítið er borið á. Með því að breyta hlutfalli vatns og dufts stjórnarðu styrk og þekju - allt frá ljósum, gegnsæjum gráum tónum til dökkra, þéttra flata.
Duftið má einnig blanda við önnur vatnsbundin málningarefni til að kanna ný litbrigði og áferð. Fjölhæft efni fyrir þau sem vilja vinna á stærri flötum, sameina teikningu og málun eða prófa sig áfram með grafít.