Falleg vatnslitaskissubók úr Claude Monet-línu Sennelier, skreytt með Wisteria myndefni innblásnu af garði Monet í Giverny.
Bókin inniheldur 20 blöð af 300 g/m² vatnslitapappír með fíngerðri cold pressed áferð sem hentar vel fyrir vatnsliti, skissur og litastúdíur. Spiralbindingin gerir bókina þægilega í notkun og auðvelt er að opna hana flata, hvort sem unnið er heima, í vinnustofunni eða á ferðinni.
Nett og falleg bók fyrir þá sem vilja fanga birtu, liti og augnablik í anda impressjónismans.
Stærð: 15 × 25 cm
Fjöldi blaða: 20
Pappír: 300 g/m²
Áferð: fíngerð / cold pressed