Vandaður efnispakki fyrir vatnslitanámskeiðin okkar.
Í pakkanum er allt sem þú þarft til að hefja vinnu með vatnsliti, bæði á námskeiðinu og heima. Vörurnar hafa verið valdar með byrjendur í huga en henta jafnframt vel til áframhaldandi notkunar.
Pakkinn inniheldur:
- Schmincke HORADAM® vatnslitasett með 12 hálfum kubbum í málmboxi
- LIND vatnslitapensil, stærð 10
- Fabriano Per Artisti vatnslitablokk, Grana Grossa/Rough, 300 g/m², 23 × 30,5 cm
HORADAM® vatnslitirnir eru hágæða listamannalitir með ríkulegu litarefni og góðum eiginleikum til litablöndunar. Artistico pappírinn er úr 100% bómull og hentar sérstaklega vel fyrir hefðbundna vatnslitatækni.
Pakkinn er valfrjáls viðbót við námskeiðið og er ekki innifalinn í námskeiðsgjaldinu. Allar vörurnar í pakkanum verða eign þátttakanda.