HORADAM vatnslitasett - Ginkgo

Vendor
Schmincke
Regular price
27,999 kr
Sale price
27,999 kr
Regular price
0 kr
Sold out
Unit price
Quantity must be 1 or more

Fallegt HORADAM vatnslitasett í prentuðu málmboxi, skreyttu verkinu Ginko eftir spænsku listakonuna Maríu Botella.

Settið inniheldur 20 hálfa vatnslitakubba : 12 klassíska HORADAM vatnsliti og 8 Supergranulating liti. Þetta gefur mjög fjölhæfa blöndu af hreinum, traustum grunnlitum og litum með dramatískri granúleringu, sem skapa fallega áferð og lifandi litaskipti á pappírnum.

Málmboxið er nett og hagnýtt, með blöndunarsvæðum og þumalhring undir boxinu sem gerir það þægilegt í notkun bæði heima, í vinnustofunni og á ferðinni.

HORADAM Aquarell eru professional vatnslitir fyrir listafólk, þekktir fyrir sterka litagjöf, góða endurleysanleika og vandaða framleiðslu. Hálfu kubbarnir eru fylltir með fljótandi vatnslit fjórum sinnum, með þurrkun á milli, sem gefur þéttan, endingargóðan og mjög drjúgan lit.

Settið hentar vel fyrir þau sem vilja vandað vatnslitasett með breiðu litavali, fallegri framsetningu og sérstökum Supergranulating litum fyrir áferðarmikla vatnslitamálun.

Vöruupplýsingar

  • Vatnslitasett í prentuðu málmboxi
  • 20 hálfir vatnslitakubbar
  • 12 klassískir HORADAM litir
  • 8 Supergranulating litir
  • Myndefni á boxi: Ginko eftir Maríu Botella
  • Innbyggð blöndunarsvæði
  • Þumalhringur undir boxinu
  • Professional vatnslitir fyrir listafólk
  • Fjórfylltir kubbar fyrir mikla litamettun og góða endingu
  • Bindiefni með völdu Kordofan arabísku gúmmíi
  • Auðvelt að virkja litina aftur með vatni
  • Framleitt í Þýskalandi

Litir í settinu

Klassískir litir: 209, 351, 371, 482, 494, 499, 519, 530, 653, 656, 665, 784
Supergranulating litir: 926, 932, 936, 944, 954, 965, 967, 983

Go to full site