Hraðanámskeið – Vatnslitir fyrir byrjendur – 4 vikna námskeið með Lukasi Bury
Hægt er að sækja um styrk fyrir þetta námskeið hjá stéttarfélögum.
Lærðu að njóta vatnslitanna í rólegu og hvetjandi umhverfi. Á þessu námskeiði ferðumst við í gegnum undirstöður vatnslitamálunar – frá einfaldri litafræði og málunartækni yfir í beitingu skugga, ljóss og samsetningu myndheildar.
Námskeiðið er ætlað byrjendum og krefst engrar fyrri reynslu. Þátttakendur fá að prófa ólíkar aðferðir, skapa eigin litaprufur og vinna að smærri verkefnum sem leiða upp að stóru lokaverkefni síðustu vikuna.
Lengd: 4 vikur, ein kennslustund á viku (2,5 klst.)
Kennari: Lukas Bury, starfandi listamaður
Hámarksfjöldi: 8 þáttakendur
Tímasetning: Þriðjudagar, kl. 18:15 - 21:15
Staðsetning: Artsupplies.is, Laugarnesvegur 74a, 104 Reykjavík
Þú lærir meðal annars:
- Grunntækni með penslum og pappír
- Litafræði og vatnslitatækni
- Áferð og skapandi aðferðir (salt, svampur, masking)
- Samsetningu einfaldra mynda, landslags og náttúru
Efnislisti
Grunnáhöld og takmarkað magn efna eru til afnota á staðnum meðan á kennslustundum stendur. Áhöldin eru eign Artsupplies og eru ekki tekin með heim nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þátttakendur geta komið með eigin efni eða keypt þau sérstaklega, einkum fyrir heimavinnu og frekari æfingar.
Eftirfarandi efnislisti er hugsaður sem tillaga fyrir þau sem vilja nota eigin efni eða æfa sig heima:
- Vatnslitir, t.d. Schmincke Horadam eða Renesans Intense: 209 Transparent Yellow, 211 Chromium Yellow Hue Lemon, 351 Ruby Red, 363 Scarlet Red, 479 Helio Cerulean og 493 French Ultramarine; eða Schmincke Horadam 12 kúbba sett
- Palletta
- Franskur pensill, t.d. Borciani Bombasino
- Marðarhárspensill (ekki nauðsynlegur), t.d. ISABEY
- Bómullarpappír, 300 gsm, cold press, t.d. Fabriano Artistico
Hentar fyrir:
Alla sem vilja þróa sig áfram í myndlist, prófa ný efni og njóta þess að skapa í litlum hópi með faglegri leiðsögn.
Verð: 49.999 kr.