Ein stroka getur breytt öllu.
Dragðu jarðlit yfir pappírinn, bættu við vatni og fylgstu með línunni verða að mjúkum litafleti. ArtGraf Tailor Shape litirnir bjóða upp á leik milli teikningar og málunar — frá þurrum förum til flæðandi pensilstroka.
Við starfsfólkið höfum valið jarðlitina með LIND penslinum okkar og nýju Per Artisti blokkinni úr 100% bómull. Hlýlegt gjafasett fyrir þann sem sækir innblástur í náttúruna, hefur gaman af áferð eða vill einfaldlega leyfa sér að prófa eitthvað nýtt.
Í settinu
- ArtGraf Tailor Shape jarðlitasett.
- LIND vatnslitapensill, stærð 8.
- Ný Fabriano Per Artisti blokk, Grana Fina / cold press, 23 × 31 cm, 300 g/m², 20 blöð, 100% bómull.
Prófaðu sömu línuna þurra og blauta. Þar byrjar tilraunin.