Fallegt limited edition vatnslitasett úr HORADAM Aquarell línunni í appelsínugulu málmboxi, með litavali sem byggir á hlýjum, safaríkum og lifandi tónum.
Juicy Orange settið inniheldur 15 hálfa vatnslitakubba : 12 vel valda grunnliti fyrir blöndun og fjölbreytta vatnslitamálun, auk 3 sérstakra appelsínugulra tóna - Transparent Orange, Saturn Red og Volcano Orange. Settið kemur einnig með sérstökum da Vinci vatnslitapensli sem er eingöngu fáanlegur með þessari útgáfu.
HORADAM Aquarell vatnslitir eru professional vatnslitir fyrir listafólk, þekktir fyrir sterka litagjöf, góða endurleysanleika og vandaða framleiðslu. Hálfu kubbarnir eru fylltir með fljótandi vatnslit fjórum sinnum, með þurrkun á milli, sem gefur mjög þéttan og endingargóðan lit.
Þetta sett hentar vel fyrir þau sem vilja fallegt, vandað og ferðavænt vatnslitasett með hlýju, björtu litavali - tilvalið fyrir skissur, landslag, litablöndun, ferðalög og skapandi vinnu með appelsínugula, rauða og jarðtóna.
Vöruupplýsingar
- Limited edition vatnslitasett
- Appelsínugult málmbox
- 15 hálfir vatnslitakubbar
- 12 grunnlitir + 3 sérstakir appelsínugulir tónar
- Sérstakur da Vinci vatnslitapensill fylgir
- Professional vatnslitir fyrir listafólk
- Fjórfylltir kubbar fyrir mikla litamettun og góða endingu
- Bindiefni með völdu arabísku gúmmíi
- Auðvelt að virkja litina aftur með vatni
- Framleitt í Þýskalandi
Litir í settinu
216, 343, 351, 369, 494, 484, 519, 656, 649, 663, 784, 787, 218, 359, 912