LIND – Hágæða vatnslitapensillinn okkar – Framleiddur í Þýskalandi

Regular price
2,799 kr
Sale price
2,799 kr
Regular price
0 kr
Sold out
Unit price
Quantity must be 1 or more

LIND er hágæða vatnslitapensillinn okkar, þróaður með áherslu á framúrskarandi eiginleika, vönduð efni og fallega hönnun. Pensillinn er framleiddur fyrir okkur í Þýskalandi af reyndum penslaframleiðanda.

Pensilhárin eru gerð úr sérvalinni blöndu af fíngerðum gervitrefjum sem líkja eftir bestu eiginleikum náttúruhára. Samsetning trefjanna gerir penslinum kleift að taka í sig mikið magn af vatni og lit og skila honum jafnt og mjúklega á pappírinn.

Hárin eru mjúk en hafa um leið góða fjöðrun og halda lögun sinni vel. Fínn oddurinn veitir mikla stjórn og gerir LIND einstaklega fjölhæfan – allt frá mjúkum, vatnsmiklum pensilstrokum og blautt í blautt yfir í fínar línur og nákvæm smáatriði.

LIND var búinn til fyrir okkur með það að markmiði að bjóða upp á virkilega góðan vatnslitapensil á sanngjörnu verði, án þess að gera málamiðlanir þegar kemur að gæðum.

Eiginleikar

  • Hágæða vegan gervitrefjar

  • Mikil vatns- og litaupptaka

  • Mjúkt og jafnt litaflæði

  • Fínn og nákvæmur oddur

  • Góð fjöðrun og lögunarheldni

  • Hentar bæði fyrir stórar pensilstrokur og fín smáatriði

  • Framleiddur fyrir okkur í Þýskalandi

  • LIND – okkar eigin lína

Go to full site