Natúrusvampur fyrir vatnslitamálun – frá Bahamaeyjum

Regular price
2,999 kr
Sale price
2,999 kr
Regular price
0 kr
Sold out
Unit price
Quantity must be 1 or more

Þessir fallegu natúrusvampar eru upprunnir frá Bahamaeyjum þar sem þeir eru handtíndir úr sjónum, vandlega hreinsaðir og síðan meðhöndlaðir með mildri sýru til að fjarlægja skeljar og óhreinindi. Að lokum eru þeir snyrtilega skornir til að henta vel í notkun.

Natúrusvampar eru frábært verkfæri í vatnslitamálun og öðrum málunaraðferðum. Þeir taka vel í sig vatn og lit og gefa einstaka, lífræna áferð sem erfitt er að ná með penslum einum saman. Henta sérstaklega vel til að:

  • búa til áferðir og mynstur

  • mýkja brúnir og litaskipti

  • fjarlægja eða lyfta lit af pappír

  • vinna í bakgrunnum og himnum

Hver svampur er einstakur í lögun og áferð, sem gerir þá að lifandi og skapandi verkfæri í vinnuferlinu.

Gott að vita:

  • Skolaðu svampinn vel í hreinu vatni eftir notkun og láttu hann þorna náttúrulega

  • Hentar einnig fyrir akrýl og blandaða miðla

  • 100% náttúruleg vara

Frábær viðbót í verkfærakistuna fyrir listamenn sem vilja vinna frjálslega með áferð og tilfinningu.

Go to full site