Slökum á með vatnslitum og búum til falleg jóla- og vetrarpóstkort. Hentar byrjendum og öllum sem vilja njóta skapandi kvöldstundar.
Í þessari vinnustofu vinnum við með vatnsliti á litlum pappírsformum og búum til einstök jóla- og vetrarpóstkort.
Við förum yfir litablöndun, einfaldar vatnslitaraðferðir og hvernig má skapa mjúka, hlýja stemmingu á pappír.
Vinnustofan er róleg, notaleg og fullkomin fyrir byrjendur eða þá sem vilja gera eitthvað fallegt í desember.
- Lengd: 2 klst
- Kennari: Lukas
- Staður: Námskeiðsrýmið á Laugarnesvegi 74a
- Allt efni innifalið