Vatnslitir fyrir byrjendur – 6 vikna námskeið með Heimi Snæ og Lúkasi [05.11-10.12.2026]

Vendor
Námskeið
Regular price
74,999 kr
Sale price
74,999 kr
Regular price
0 kr
Sold out
Unit price
Quantity must be 1 or more

Vatnslitir fyrir byrjendur – 8 vikna námskeið með Heimi Snæ

Hægt er að sækja um styrk fyrir þetta námskeið hjá stéttarfélögum.

Lærðu að njóta vatnslitanna í rólegu og hvetjandi umhverfi. Á þessu námskeiði ferðumst við í gegnum undirstöður vatnslitamálunar – frá einfaldri litafræði og málunartækni yfir í beitingu skugga, ljóss og samsetningu myndheildar.

Námskeiðið er ætlað byrjendum og krefst engrar fyrri reynslu. Þátttakendur fá að prófa ólíkar aðferðir, skapa eigin litaprufur og vinna að smærri verkefnum sem leiða upp að stóru lokaverkefni síðustu vikuna.

  • Lengd: 6 vikur, ein kennslustund á viku (3 klst.)
  • Kennari: Heimir Snær, starfandi listamaður
  • Hámarksfjöldi: 10 þátttakendur
  • Tímasetning: Fimmtudagar kl. 18:15–21:15
  • Staðsetning: Artsupplies.is, Laugarnesvegur 74a, 105 Reykjavík

Þú lærir meðal annars:

  • Grunntækni með penslum og pappír
  • Litafræði og vatnslitatækni
  • Áferð og skapandi aðferðir (salt, svampur, masking)
  • Samsetningu einfaldra mynda, landslags og náttúru

Hentar fyrir:
Alla sem vilja þróa sig áfram í myndlist, prófa ný efni og njóta þess að skapa í litlum hópi með faglegri leiðsögn.

Verð: 74.999 kr.

Go to full site