Wax Gel er fjölhæft gel sem hægt er að nota sem yfirlag yfir akrýlmálningu eða blandað beint saman við akrýlliti í hvaða hlutfalli sem er.
Gelið þornar með fallegri, mattri áferð sem hægt er að pússa að hluta til eða í heild sinni með mjúkum klút til að fá mýkri gljáa og meiri dýpt á yfirborð þess.
Hentar vel sem lokaáferð á málverkum ásamt því að það gefur þeim einstakt yfirbragð.