Vandaður efnispakki fyrir sex vikna framhaldsnámskeið í vatnslitum með Maríu Gísladóttur.
Pakkinn hentar verkefnum námskeiðsins þar sem unnið er með litagleði, línur og flæði. Hér færðu sjö vatnsliti, vatnslitablokk, vatnsheldan svartan penna og hvítan olíupastellit til að prófa aðferðirnar á námskeiðinu og halda áfram að mála heima.
Pakkinn inniheldur:
- 6 Renesans Intense Water vatnsliti í 15 ml túpum, einn af hverjum lit: 08 Chromium Yellow (Hue), 11 Transparent Yellow, 18 Scarlet Red, 23 Quinacridone Red, 28 Ultramarine Blue og 30 Helio Cerulean.
- 1 Schmincke HORADAM® AQUARELL vatnslit í 5 ml túpu: 920 Brilliant Opera Rose.
- 1 Fabriano PER ARTISTI vatnslitablokk, Cold Press / Grana Fina, 300 g/m², úr 50% bómull.
- 1 Renesans Outline Pen, svartan vatnsheldan tússpenna.
- 1 hvítan Sennelier olíupastellit.
Veldu stærð blokkar og þykkt penna: Blokkin fæst í 23 × 31 cm, 25 × 36 cm eða 36 × 50 cm og penninn í 0,2 mm, 0,3 mm eða 0,4 mm, eftir lagerstöðu. Allir sjö vatnslitirnir fylgja hverjum pakka.
Litirnir gefa fjölbreytta möguleika á litablöndun, frá léttum litaflötum yfir í sterkar áherslur. Vatnsheldi penninn hentar til að sameina línuteikningu og vatnsliti, en hvíti olíupastelliturinn nýtist til að varðveita ljós svæði og skapa áferð.
Pakkinn er hugsaður sem viðbót við eigin áhöld. Penslar, hvítur gelpenni og blýantur eru ekki innifalin.
Pakkinn er valfrjáls viðbót við vatnslitanámskeiðið með Maríu, 13. október–17. nóvember 2026, og er ekki innifalinn í námskeiðsgjaldinu. Allar vörurnar í pakkanum verða eign þátttakanda.