Nærmynd af höndum við mótun pensilhauss hjá Borciani e Bonazzi.

Borciani e Bonazzi: ítalskt handverk í hendinni

EFNI OG ÁHÖLD · SAGAN Á BAK VIÐ PENSLANA

Borciani e Bonazzi:
ítalskt handverk í hendinni

Fallegir penslar sem gott er að mála með. Á bak við Borciani e Bonazzi eru áratugir af handverki, forvitni um ný efni og náið samstarf við listafólk.

Nærmynd af höndum við mótun pensilhauss hjá Borciani e Bonazzi.
Pensill tekur á sig mynd í höndum penslasmiðs. Ljósmynd: Borciani e Bonazzi.

Sumir penslar verða fljótt þeir sem maður grípur alltaf í. Þeir liggja vel í hendi, taka hæfilega við lit og svara hreyfingunni eins og maður vonaði. Svo eru þeir kannski líka svo fallegir að maður vill hafa þá frammi á vinnuborðinu.

Borciani e Bonazzi eru meðal þeirra merkja sem seljast stöðugt vel hjá okkur í Myndlistarvöruversluninni. Það kemur okkur lítið á óvart. Penslarnir sameina gæði, þægindi og fallega hönnun á hátt sem okkur finnst einkennandi fyrir ítalskt handverk í samtímanum. Til að skilja þá betur er gaman að byrja á fólkinu sem lagði grunninn.

1951: Wilma, Arturo og lítið verkstæði

Sagan hefst árið 1951 í litlu handverksverkstæði í Emilia á Ítalíu. Systkinin Wilma og Arturo Bonazzi höfðu lært penslagerð hjá handverksmeisturum á svæðinu og ákváðu að hefja eigin rekstur. Þau þekktu efnin, handtökin og röðina sem verkið þurfti að fylgja. Þegar Wilma giftist manni að nafni Borciani sameinuðust ættarnöfnin í nafninu sem við þekkjum í dag.1

Málarar og forverðir leituðu til verkstæðisins eftir penslum fyrir sín verkefni. Þessi tengsl við fólk sem gerir miklar kröfur til áhaldanna hafa fylgt fyrirtækinu síðan. Í eigin söguyfirliti nefnir Borciani e Bonazzi meðal annars að penslar þess hafi verið notaðir við endurgerð Sixtínsku kapellunnar í Róm.1

Í dag er framleiðslan í Casalmaggiore í héraðinu Cremona. Penslarnir eru enn gerðir á Ítalíu og settir saman í höndunum, einn af öðrum. Um leið hefur fyrirtækið byggt upp rannsóknar- og þróunarstarf sem skila sér í nýjum trefjum, nýjum sköftum og nýjum leiðum til að vinna með lit.2 3

Hvernig verður góður pensill til?

Á bak við einfalt pensilfar liggja margar litlar ákvarðanir. Hvaða hár eða trefjar eiga að fara í pensilinn? Hversu mikið efni þarf? Hve langt á það að ná út fyrir málmhólkinn, og hvernig á oddurinn að svara þrýstingi?

Í lýsingu Borciani e Bonazzi á framleiðslunni kemur fram að hárunum sé raðað þannig að oddarnir snúi í sömu átt. Hárknippið er bundið við grunninn með bómullarþræði og málmhólkurinn heldur því saman.3 Í viðtali lýsir Alessia Bernardi, þá markaðsstjóri fyrirtækisins, því hvernig rétt magn er vegið og sérstök mót notuð til að móta pensilhausinn áður en hann er festur á skaftið.4

Þetta er handverk sem tekur tíma að læra. Í sama viðtali frá 2021 segir Alessia að það taki að minnsta kosti fimm ár að ná þeirri færni sem vinnan krefst og að konur séu í meirihluta meðal þeirra sem smíða penslana. Saga Wilmu heldur því áfram í höndum fleiri kvenna sem kunna þetta vandasama verk.4

INNI Á VERKSTÆÐINU

Handtökin á bak við pensilinn

Í myndbandinu sem Borciani e Bonazzi lét gera í tilefni af 70 ára afmælinu má kíkja inn í framleiðsluna og sjá vinnuna sem liggur að baki penslunum.

Myndband: Borciani e Bonazzi. Horfa á YouTube.

Góður í hendinni, fallegur á borðinu

Það er auðvelt að horfa fyrst á oddinn þegar maður velur pensil. Skaftið á þó stóran þátt í því hvernig er að vinna með hann. Þykkt, lögun og jafnvægi geta skipt máli þegar maður situr lengi við málun.

Við þróun UNICO var skaftið sérstaklega mótað með grip og jafnvægi í huga. Lögunin á líka að hindra að pensillinn rúlli af stað þegar hann er lagður frá sér og halda oddinum frá borðfletinum.5 Lítið atriði, þar til maður hefur elt blautan pensil yfir vinnuborðið.

Okkur finnst fegurðin í þessum penslum einmitt liggja í því hvað er vel hugsað um smáatriðin. Litur skaftsins, áferðin og formið mynda fallega heild sem maður fær að nota á hverjum degi.

Frá hefðbundnum hárum til nýrra trefja

Borciani e Bonazzi framleiðir bæði pensla úr náttúrulegum hárum og gervihárum. Rannsóknir á gervitrefjum hafa orðið sífellt stærri hluti af þróunarstarfinu. Þar er meðal annars unnið með mýkt, teygjanleika, vatnsupptöku og hvernig pensillinn nær aftur lögun sinni eftir strokuna.3

Gervihár eru því ekki eitt og sama efnið í öllum penslum. Mjúkur vatnslitapensill og stífari pensill fyrir þykka olíuliti þurfa ólíka eiginleika. Hér eru þrjú dæmi úr úrvalinu okkar.

Unico Infinito 850 vatnslitapensill með svörtu skafti og HIDRO® gervihárum.

FYRIR VATNSLITI

UNICO INFINITO

HIDRO® gervitrefjarnar taka vel upp vatn og skila því hægt og jafnt frá sér. Mjúkur pensilhausinn hefur fínan odd og bregst við breyttum þrýstingi, svo hægt er að fara frá fínum línum yfir í breiðari strokur. Svarta resínskaftið hefur áferð sem veitir viðnám í gripinu.6

Skoða Unico Infinito 850 →
Il Perfetto penslasett frá Borciani e Bonazzi með MKS® gervihárum.

FYRIR MJÚKAR OG NÁKVÆMAR STROKUR

IL PERFETTO

MKS® gervihárin voru þróuð með eiginleika Kolinsky-hára að fyrirmynd. Mismunandi þykkt og lögun trefjanna hjálpar penslinum að halda oddi og ná aftur lögun eftir notkun. Línan hentar meðal annars fyrir vatnsliti, gouache og þunna akrýl- eða olíuliti.7

Skoða Il Perfetto settið →
Flatur Unico Off-White 831 pensill fyrir þykkari liti.

FYRIR ÞYKKARI LITI

UNICO OFF-WHITE

Stífari gervitrefjar fyrir vinnu með þykka liti, olíumálningu og áferðargel. Þær veita meiri mótstöðu en mjúku vatnslitapenslarnir og henta þegar ýta þarf litnum til á fletinum. Hér nýtist líka mótaða UNICO-skaftið.8

Skoða Unico Off-White 831 →

Þegar listafólk kemur að hönnuninni

Eitt af því skemmtilega við Borciani e Bonazzi er samstarfið við listafólk sem þekkir áhöldin úr daglegri vinnu.

Vatnslitalistakonan Silvia Molinari tók þátt í þróun Series 700. Í eigin frásögn lýsir hún því að fá að fara inn í verksmiðjuna, skoða trefjarnar og kynnast ákvörðununum á bak við pensilinn. Hún kom að verkefninu sem listamaður með reynslu af því hvernig pensill þarf að haga sér á blaðinu. Úr samstarfinu urðu ferðapenslar með gervihárum og loki sem verndar oddinn á ferðinni.9

Málað með vatnslitum og pensli úr Series 700 á mynd frá þróunarverkefni Silviu Molinari.
Vatnslitamálun á mynd úr frásögn Silviu Molinari af þróun Series 700. Ljósmynd: Borciani e Bonazzi.
Series 700 penslar við blóma- og berjamyndir málaðar með vatnslitum.
Series 700 við vatnslitamyndir. Lögun, vatnsupptaka og ferðabúnaður voru hluti af verkefninu. Ljósmynd: Borciani e Bonazzi.

Samstarfið við myndskreytinn Laura Cortinovis sýnir aðra hlið á sömu hugsun. Í settunum Rifugi di Quiete og Trame di vento e di blu eru penslar valdir fyrir ólíkar leiðir að vatnslitamynd: annars vegar smáatriði og uppbyggingu í lögum, hins vegar hreyfingu og frjálsara flæði. Settin eru myndskreytt með verkum Lauru og málmöskjurnar nýtast áfram við vinnuna.10

Þarna mætast handverkið, reynsla listafólksins og falleg hönnun á mjög áþreifanlegan hátt.

Finndu pensil sem þig langar að mála með

Við veljum Borciani e Bonazzi af því að okkur finnst þetta vel gerð áhöld sem gaman er að nota. Í úrvalinu eru penslar fyrir vatnsliti, olíu og akrýl, penslasett fyrir ólíkar aðferðir og áhöld fyrir nákvæma smávinnu. Fallegt útlitið er svo sannarlega kostur líka.

Besti pensillinn fyrir þig fer eftir því hvað þú málar og hvernig þér finnst gott að vinna. Komdu við og skoðaðu penslana hjá okkur, berðu saman lögunina og finndu hvernig sköftin liggja í hendi. Við hjálpum þér að velja. Þú getur líka skoðað úrvalið í vefversluninni.

Til baka á bloggið

Skrifa athugasemd

Athugasemdir þurfa samþykki áður en þær birtast.