Vöruflokkur: Olíustangir - Oil Sticks

Olíustangir eru olíumálning í föstu formi sem gerir þér kleift að teikna og mála beint á flötinn. Þær sameina ríka liti olíumálningar og frelsið í því að halda um litinn sjálfan – hvort sem þú vilt draga fín strik, þekja stærri fleti eða skapa lifandi áferð.

Notaðu olíustangir einar sér eða með hefðbundnum olíulitum úr túpu. Þú getur látið strikin njóta sín eða unnið litinn áfram með pensli og málningarhníf. Veldu grunnaðan striga, plötu eða pappír ætlaðan fyrir olíumálun.

Olíustangir, einnig þekktar sem Oil Sticks, þorna og harðna líkt og olíumálning. Olíupastellitir haldast hins vegar mjúkir. Viltu vita meira áður en þú velur? Lestu greinina okkar: Olíustangir og olíupastellitir – hver er munurinn?

Olíustangir - Oil Sticks