Collection: ISABEY

Isabey penslar – frönsk handverkshefð

Isabey penslar sameina franska handverkshefð, fagurfræði og djúpa virðingu fyrir verkfærum listamannsins.

Vörumerkið ber nafn Jean-Baptiste Isabey, franska málarans, smámyndameistarans og steinprentlistamannsins. Í dag eru Isabey penslar enn hannaðir og framleiddir í Frakklandi með mikilli nákvæmni og alúð.

Hver pensill er handunninn frá grunni: náttúruleg hár eru flokkuð af vandvirkni, pensilhausinn mótaður í höndunum og skaftið sett saman með sömu hefðbundnu aðferðum og hafa mótað Isabey frá upphafi. Hárin eru ekki klippt til, heldur mótuð þannig að náttúruleg mýkt, fjaðurmagn og nákvæmni þeirra haldist.

Útkoman er pensill sem verður raunveruleg framlenging á hendi listamannsins - ekki aðeins verkfæri, heldur hlutur sem hvetur til nákvæmni, næmni og skapandi vinnu.

Skoðaðu Isabey penslana í versluninni okkar á Laugarnesvegi 74a eða í netversluninni á Artsupplies.is.