Vöruflokkur: Vatnslitapenslar

Pensillinn hefur mikið að segja um hvernig vatnið og liturinn berast á pappírinn. Hér finnur þú vatnslitapensla frá Renesans og Borciani & Bonazzi, bæði úr náttúrulegum hárum og gervihárum. Í úrvalinu eru meðal annars mjúkir Petit Gris penslar úr íkornahárum, Kolinsky penslar og Unico Infinito penslar með vatnsdrægum HIDRO® gervihárum.

Veldu pensil eftir því hvernig þér finnst best að mála: með fínum línum og smáatriðum, breiðum pensilstrokum eða ríkulegu vatni á stærri flötum. Við eigum einnig ferðapensla fyrir skissubókina og penslasett fyrir þau sem vilja prófa ólík form og stærðir.

Við hjálpum þér gjarnan að finna pensil sem hentar þínu handbragði.

Vatnslitapenslar