Vöruflokkur: Vatnslitasett

Gott vatnslitasett gefur þér liti sem gaman er að kynnast og blanda saman. Hér finnur þú vatnsliti í kubbum og túpum frá Schmincke, Daniel Smith, Sennelier og Renesans, ásamt okkar eigin setti, The Colors of Iceland.

Veldu lítið ferðasett fyrir skissubókina, grunnlitaval til að æfa litablöndun eða stærra sett með fjölbreyttum litbrigðum. Í úrvalinu eru líka Supergranulating sett með áberandi kornóttri áferð, glitrandi málmlitir og gjafasett fyrir þau sem hafa gaman af því að mála.

Við aðstoðum þig gjarnan við að finna sett sem hentar þér, hvort sem þú ert að byrja með vatnsliti eða vilt bæta nýjum litum við safnið.

Vatnslitasett