Skattur innifalinn.
Shipping calculated at checkout.
Magn
Couldn't load pickup availability
Hraðanámskeið – Prentun: Dúkrista, grafík og jóla póstkort með Weroniku
Hægt er að sækja um styrk fyrir þetta námskeið hjá stéttarfélögum.
Lengd: 4 vikur, ein kennslusttund á viku (3 klst.)
Kennari: Weronika Balcerak, listamaður, kennari og stofnandi Myndlistarvöruverslunarinnar
Hámarksfjöldi: 10 þátttakendur
Tímasetning: Fimmtudagar, kl. 18:15 - 21:15
Staðsetning: Artsupplies.is, Laugarnesvegur 74a, 104 Reykjavík
Kynntu þér heillandi heim prentlistar í skapandi og hvetjandi umhverfi. Í þessu námskeiði lærum við undirstöður prentlistar og förum í gegnum mismunandi aðferðir – frá einþrykki (monoprint) yfir í dúkristu (linocut) og að lokum vinnum við okkar eigið jóla póstkort sem lokaverkefni.
Þátttakendur fá kynningu á efnum, verkfærum og hugmyndafræði prentlistar og fá tíma til að þróa eigin verk undir leiðsögn Weroniku. Námskeiðið er ætlað byrjendum og þeim sem vilja rifja upp eða dýpka þekkingu sína á hefðbundnum prentunar aðferðum.
Prentunar námskeiðin hjá Myndlistarvöruversluninni artsupplies.is eru mjög vinsæl – við hvetjum því alla til að tryggja sér pláss um leið og ákvörðunin er tekin!
Hentar fyrir: Alla sem vilja þróa sig áfram í myndlist, prófa ný efni og njóta þess að skapa í litlum hópi með faglegri leiðsögn.
Hægt er að sækja um styrk fyrir þetta námskeið hjá stéttarfélögum.