Skattur innifalinn.
Shipping calculated at checkout.
Magn
Couldn't load pickup availability
Hraðanámskeið – Vatnslitir fyrir byrjendur – 4 vikna námskeið með Heimi Snæ
Hægt er að sækja um styrk fyrir þetta námskeið hjá stéttarfélögum.
Lærðu að njóta vatnslitanna í rólegu og hvetjandi umhverfi. Á þessu námskeiði ferðumst við í gegnum undirstöður vatnslitamálunar – frá einfaldri litafræði og málunartækni yfir í beitingu skugga, ljóss og samsetningu myndheildar.
Námskeiðið er ætlað byrjendum og krefst engrar fyrri reynslu. Þátttakendur fá að prófa ólíkar aðferðir, skapa eigin litaprufur og vinna að smærri verkefnum sem leiða upp að stóru lokaverkefni síðustu vikuna.
Lengd: 4 vikur, ein kennslustund á viku (2,5 klst.)
Kennari: Heimir Snær, starfandi listamaður
Hámarksfjöldi: 8 þátttakendur
Tímasetning: Fimmtudagar kl. 18:15–20:45
Dagsetningar: 10., 17. og 24. september og 1. október 2026
Staðsetning: Artsupplies.is, Laugarnesvegur 74a, 105 Reykjavík
Þú lærir meðal annars:
Grunntækni með penslum og pappír
Litafræði og vatnslitatækni
Áferð og skapandi aðferðir (salt, svampur, masking)
Samsetningu einfaldra mynda, landslags og náttúru
Efnislisti
Grunnáhöld og takmarkað magn efna eru til afnota á staðnum meðan á kennslustundum stendur. Áhöldin eru eign Artsupplies og eru ekki tekin með heim nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þátttakendur geta komið með eigin efni eða keypt þau sérstaklega, einkum fyrir heimavinnu og frekari æfingar.
Eftirfarandi efnislisti er hugsaður sem tillaga fyrir þau sem vilja nota eigin efni eða æfa sig heima:
Vatnslitir, t.d. Schmincke Horadam eða Renesans Intense: 209 Transparent Yellow, 211 Chromium Yellow Hue Lemon, 351 Ruby Red, 363 Scarlet Red, 479 Helio Cerulean og 493 French Ultramarine; eða Schmincke Horadam 12 kúbba sett