Fimm litir, tveir heimar: Daniel Smith PrimaTek með Heimi Snæ

Fimm litir, tveir heimar: Daniel Smith PrimaTek með Heimi Snæ

Úr versluninni · Daniel Smith PrimaTek

Fimm litir.
Tveir heimar.

Heimir Snær tekur okkur með til Mars og Venusar með fimm vatnslitum úr PrimaTek-línu Daniel Smith.

Það má komast ansi langt með fimm liti. Heimir Snær, samstarfsmaður okkar, fór alla leið til Mars og Venusar.

Í þessum tveimur ímynduðu landslagsmyndum notar hann fimm vatnsliti úr PrimaTek-línu Daniel Smith. Jarðrauðir tónar, dempaður blár, túrkísblár og óvæntur grænn verða að fjallshryggjum, fjarlægum sjóndeildarhring og himni sem tilheyrir öðrum heimi. Það er eitthvað viðeigandi við það að nota steinefni jarðarinnar til að ímynda sér aðrar reikistjörnur.

Heimir Snær brosir í Myndlistarvöruversluninni, umkringdur litum, penslum og pappír.
Heimir Snær — myndlistarmaður og einn af okkur í versluninni.

Listamaðurinn á bak við myndirnar

Kynnstu Heimi Snæ

Mörg ykkar þekkja Heimi úr búðinni. Hann er bæði frábær samstarfsmaður og hæfileikaríkur málari, og okkur finnst sérstaklega gaman að fá að sýna ykkur það sem hann skapar sjálfur.

Heimir Snær Sveinsson er starfandi myndlistarmaður með bakgrunn í málun. Hann lauk BA (Hons)-gráðu í myndlist frá University of Cumbria og meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Hann hefur einnig starfað við leikmyndir fyrir kvikmyndir og sjónvarp.

Í myndlist sinni hefur hann meðal annars fengist við sólarljós, skugga og tímann. Hér kynnumst við annarri hlið á verkum hans: landslagi sem verður til í samspili lita, áferðar og ímyndunarafls.

01 / Mars

Heimur í hlýjum tónum

Vatnslitamynd Heimis Snæs af ímynduðu landslagi á Mars: ryðrauðir fjallshryggir undir túrkísbláum himni.
Mars - vatnslitamynd eftir Heimi Snæ.

Á Mars rísa rauðbrúnir tindar yfir ljósri, rykugri jörð. Túrkísblár himinn dregur fram hlýjuna í fjöllunum, en skiptin milli ljósra litaflata og dökkra hryggja gefa landslaginu dýpt. Það er margt að skoða áður en maður fer yfirhöfuð að telja litina.

02 / Venus

Önnur stemning

Vatnslitamynd Heimis Snæs af ímynduðu landslagi á Venus: blágrátt grýtt landslag undir björtum gulgrænum himni.
Venus - sömu fimm litirnir, allt önnur stemning.

Á Venusi tekur við kaldara og framandlegra landslag. Blágráar klettamyndanir teygja sig um forgrunninn undir björtum gulgrænum himni. Ljósar rákir brjóta upp dökka jörðina og kornótt áferð litanna gefur yfirborðinu veðrað yfirbragð.

Hlið við hlið sýna myndirnar hvað hægt er að gera með fáa liti. Þegar hlýju tónarnir fá meira rými breytist allt landslagið. Fái bláu og grænu litirnir að ráða ferðinni erum við skyndilega komin annað.

Leyfðu litunum að koma þér á óvart

PrimaTek og gleðin við að prófa sig áfram

PrimaTek-vatnslitirnir eru unnir úr náttúrulegum steinefnum og hver litur hefur sín sérkenni. Daniel Smith flokkar alla fimm litina sem Heimir valdi sem kornandi liti. Þegar málað er með þeim geta litarefnisagnirnar sest ójafnt í dældir pappírsins og myndað sýnilega áferð þegar vatnið þornar.

Þetta kallast kornun, eða granulation á ensku. Fíngerðir blettir og korn geta orðið til þess að einfaldur litaflötur minnir á stein, sand eða fjarlægt landslag. Litirnir haga sér ólíkt og bæði pappírinn, vatnsmagnið og aðferðin við málun hafa áhrif á útkomuna.

Þess vegna eru þessir litir svo skemmtilegir fyrir þau sem vilja gera tilraunir. Úr einni túpu má fá ótal blæbrigði: meiri þynning dregur fram ljósari tóna og agnirnar skapa tilbrigði innan sama litaflatar. Með fáum litum gefst líka tækifæri til að kynnast hverjum þeirra betur og nýta eiginleika hans í myndinni.

Litaval Heimis

Litirnir fimm

Fimm litaprufur, frá vinstri: Lapis Lazuli Genuine, Sleeping Beauty Turquoise Genuine, Serpentine Genuine, Bronzite Genuine og Mummy Bauxite.
Frá vinstri: Lapis Lazuli, Sleeping Beauty Turquoise, Serpentine, Bronzite og Mummy Bauxite.
Litaprufa af Lapis Lazuli Genuine, frá þéttum blágráum lit yfir í ljósan, kornóttan litaflöt.

01 / Dempaði blái liturinn

Lapis Lazuli Genuine

Dempaður blágrár litur með greinilegri kornun. Hann myndar rólegt mótvægi við skærari túrkísbláa litinn í þessu litavali. Það er freistandi að prófa hann í skuggum kletta og fjarlægum fjöllum.

Nánar um litinn hjá Daniel Smith ↗
Litaprufa af Sleeping Beauty Turquoise Genuine, frá sterkum túrkísbláum lit yfir í ljósa þynningu.

02 / Bjartur og líflegur

Sleeping Beauty Turquoise Genuine

Þessi líflegi blái litur er unninn úr túrkís frá Arizona og myndar fallega kornun. Með jarðlitunum skapar hann áberandi andstæður milli hlýrra og kaldra tóna og býður upp á spennandi möguleika í himni og vatni.

Nánar um litinn hjá Daniel Smith ↗
Litaprufa af Serpentine Genuine, frá þéttum grænum lit yfir í ljósa gulgræna þynningu.

03 / Óvænti græni liturinn

Serpentine Genuine

Grænn litur úr áströlsku steinefni sem myndar kornun með örsmáum rauðleitum flekkjum. Við þynningu kemur ljósari gulgrænn tónn í ljós. Hann er jafn spennandi í kunnuglegum gróðri og í ímynduðum himni á annarri reikistjörnu.

Nánar um litinn hjá Daniel Smith ↗
Litaprufa af Bronzite Genuine, frá hlýjum brúnum lit yfir í ljósan sandlit með kornóttri áferð.

04 / Hlýja og dálítill gljái

Bronzite Genuine

Gullbrúnn litur sem verður að mjúkum sandlit þegar hann er þynntur. Samkvæmt Daniel Smith gefa örþunnar járnoxíðfilmur honum fíngerðan gljáa og brúnar agnir setjast í áferð pappírsins. Gljáann er erfitt að fanga til fulls á ljósmynd.

Nánar um litinn hjá Daniel Smith ↗
Litaprufa af Mummy Bauxite, frá þéttum ryðrauðum lit yfir í ljósan rauðbrúnan tón.

05 / Jarðrauði tónninn

Mummy Bauxite

Náttúruleg járnoxíð gefa þessum lit hlýjan, kanilrauðan blæ. Kornunin minnir á ryð og gerir hann að áhugaverðum kosti fyrir jarðveg, veðruð yfirborð og hlýrri tóna litavalsins.

Nánar um litinn hjá Daniel Smith ↗

Prófaðu á aukablaði

Fáir litir, margt að uppgötva

Byrjaðu á að gera prufu með hverjum lit, frá þéttum lit yfir í ljósa þynningu. Leyfðu prufunum að þorna áður en þú berð þær saman. Sumt af því áhugaverðasta kemur betur í ljós þegar vatnið er farið.

Prófaðu svo tvo liti saman. Settu þá hlið við hlið á rakan pappír og leyfðu þeim að renna saman. Berðu það saman við blöndu sem þú gerir á litaspjaldinu. Prófaðu vatnslitapappír með áferð, breyttu vatnsmagninu og leyfðu litnum að jafna sig án þess að fara sífellt yfir hann með penslinum.

Einföld æfing er að mála tvær myndir með sömu fáu litunum: fyrst með hlýju tónana í aðalhlutverki, síðan þá köldu. Það þarf ekki alltaf fleiri túpur til að skapa nýja stemningu.

Daniel Smith vatnslitir og sett í Myndlistarvöruversluninni, með Mars- og Venusarmyndum Heimis til sýnis.
Daniel Smith í hillunum hjá okkur á Hrísateigi 47.

Skoðaðu litina hjá okkur

Komdu í heimsókn!

Langar þig að kynnast PrimaTek-litunum? Líttu við hjá okkur á Hrísateigi 47 í Laugarnesi, skoðaðu úrvalið og fáðu innblástur fyrir næsta verkefni. Við spjöllum gjarnan um liti og aðstoðum þig við að velja efni sem henta því sem þig langar að prófa.

Þú getur líka skoðað Daniel Smith vatnslitina og settin í vefversluninni okkar, hvar sem þú ert á landinu.

Það er nóg eftir af landslagi til að mála. Þú ræður á hvaða reikistjörnu.

Skoða Daniel Smith vatnsliti →
Back to blog

Leave a comment

Please note, comments need to be approved before they are published.