Úr stofunni í uppáhaldsverslunina þína: artsupplies.is fimm ára
Fimm ára afmæli · 2021–2026
Ítölskutímar,
þrettán fermetrar,
og fimm árí sögu Myndlistarvöruverslunarinnar
Stutt saga verslunar sem lagði smám saman undir sig stofuna okkar, óx upp úr sínu fyrsta húsnæði og á ítölskukennara ýmislegt að þakka.

Óvænt afleiðing ítölskunáms
Þegar Lukas hóf ítölskunám á netinu árið 2020 var opnun myndlistarvöruverslunar ekki beinlínis á námsáætluninni.
Kennarinn hans var hins vegar góður vinur tvennra pólsk-ítalskra hjóna sem standa að Renesans. Fyrir tilstilli hans fórum við að panta myndlistarvörur frá þeim til eigin nota. Fljótlega vildu listamannavinir okkar vera með og áður en langt um leið voru pantanirnar orðnar að sameiginlegu verkefni.
Fyrirkomulagið var einstaklega einfalt: vörulisti, penni og hringur utan um það sem mann langaði í. Áður en við eignuðumst innkaupakörfu á netinu létum við okkur nægja að krota af ákafa í vörulista.
Þegar við lítum til baka var verslunin í raun þegar farin að taka á sig mynd. Við völdum efni og áhöld sem okkur langaði sjálf að nota, deildum nýjum uppgötvunum með öðrum listamönnum og fundum leiðir til að koma vörunum til Íslands. Við vorum bara ekki búin að gefa þessu nafn.

Vefverslunin opnar.
Stofan fyllist.
Nafnið varð að lokum artsupplies.is.
Við seldum myndlistarvörur. Við vorum á Íslandi. Okkur fannst þetta ná utan um aðalatriðin.
Á meðan aðrir fullkomnuðu brauðbaksturinn í samkomubanninu vorum við að smíða vefverslun. Í október 2021 opnuðum við hana formlega, með vörulagerinn á afar hentugum stað: í stofunni okkar.
Til að byrja með var þetta nokkuð þægilegt. Eftir því sem lagerinn stækkaði minnkuðu þægindin. Kössunum fjölgaði, gönguleiðirnar þrengdust og húsgögnin eignuðust óvænta nágranna.
Síðan fóru viðskiptavinir að spyrja fullkomlega eðlilegrar spurningar: væri hægt að skoða vörurnar áður en þær væru keyptar?
Auðvitað. Við fórum að taka á móti fólki heima og á vinnustofunni, kynna litina og aðstoða við valið. Mörkin milli listsköpunarinnar, heimilisins og nýja fyrirtækisins urðu sífellt óljósari.
Okkur vantaði búð.
Þrettán fermetrar til skiptanna
Við fengum okkar fyrsta eiginlega verslunarhúsnæði fyrir tilstilli Prents og Vina, sem listamenn ráku og buðu okkur að deila með sér rýminu að Laugarnesvegi 74a.
Öllum þrettán fermetrunum.
Það var heildarstærðin, sem við deildum á milli okkar. Á virkum dögum var opið frá 16 til 18, svo viðskiptavinir höfðu nokkuð afmarkaðan tíma til að fá brýna þörf fyrir málningu.
Þetta var pínulítið, en skipti okkur miklu máli. Nú gat fólk komið sérstaklega til að skoða úrvalið, bera saman liti og spjalla um efni og áhöld. Við gátum raðað vörum í hillur sem voru ætlaðar til þess. Við gátum lokað búðinni og farið heim.
Sumarið 2022 fengum við allt rýmið til okkar afnota. Fermetrarnir voru nákvæmlega jafnmargir og áður, en skyndilega voru þeir allir okkar.
Weronika, sem hefur séð um útlit verslunarinnar frá upphafi, tók til við að nýta þá sem best. Hver hilla hafði sitt hlutverk. Hvert horn þurfti að standa undir sér. Þetta var afbragðs kennsla í hönnun verslunarrýmis, með afar lítið svigrúm fyrir fræðilegar vangaveltur.

Eitt örlítið rými.



Margar þessara lausna fylgdu okkur þegar við fluttum. Gamall og gagnlegur skápur varð ekkert síður gagnlegur þótt plássið ykist.
Úrvalið stækkar.
Húsið gerir það ekki.
Árið 2023 tókum við upp reglulegan opnunartíma og ákváðum að leggja enn meiri kraft í að byggja upp verslunina.
Fleiri litir komu. Fleiri penslar fylgdu í kjölfarið. Við bættum við pappír, þar á meðal stórum lausum örkum, og uppspenntum strigum: einmitt því sem hentar vel í verslun þar sem varla er auður blettur.
Á bak við hverja viðbót var sami áhuginn og hafði komið vörulistapöntununum af stað. Við fundum eitthvað sem okkur fannst að listafólk hér ætti að geta nálgast og leituðum leiða til að flytja það inn. Að finna því stað í búðinni var svo annað mál.
Árið 2024 bættist líka eitthvað nýtt við: í samstarfi við Kremer Pigmente kynntum við fyrstu útgáfuna af The Colors of Iceland, okkar eigin vatnslitasetti með litum úr íslenskum jarðefnum.
Fyrir okkur, sem höfðum byrjað á því að draga hringi í vörulista annarra, var það stór stund að velja liti í okkar eigið sett.
Á meðan hélt búðin áfram að fyllast.
Á Þorláksmessu 2024 varð plássleysið sérstaklega áberandi. Fólk í síðustu jólainnkaupunum — aðallega eiginmenn — myndaði snyrtilega röð fyrir utan og beið eftir að komast inn.
Okkur þótti afar vænt um að sjá þau. Okkur var líka farið að gruna að það myndi ekki leysa allan vanda að raða enn einu sinni upp á nýtt.


Kíkjum á fyrstu litahillurnar
Lítið upphaf, hillu fyrir hillu. Sumt hefur stækkað töluvert. Annað þurfti lítið að bæta.




Stutt ferðalag og annasöm nótt
Lausnin beið hinum megin við húsið.
Nágrannar okkar buðu okkur stærra húsnæði með inngangi frá Hrísateigi 47. Við fluttum verslunina á einni nóttu og opnuðum á nýja staðnum 15. mars 2025.
Eftir að hafa komið öllu fyrir á þrettán fermetrum árum saman fannst okkur tvöfalt rými dásamlegur munaður. Vörurnar fengu meira pláss, auðveldara varð að skoða úrvalið og við gátum tekið á móti fólki án þess að allir þyrftu að samhæfa hreyfingar sínar jafn vandlega.
Svo mörg ykkar komu á opnunina. Það var þegar við sáum kunnuglega viðskiptavini skoða nýju búðina að flutningarnir urðu raunverulegir: litli staðurinn sem við höfðum byggt upp saman var kominn með nýtt heimili.
Það ár hófum við líka námskeiðahald, þar sem fólk fékk tækifæri til að læra og vinna með efni og áhöld undir leiðsögn starfandi listamanna. Samtölin sem höfðu alltaf átt sér stað við hillurnar fengu nú annan vettvang.


Fimm kerti
Í dag eru litirnir fleiri, úrvalið stærra og fleiri koma að daglegu lífi verslunarinnar en hefðu nokkurn tíma komist fyrir í fyrsta rýminu.
The Colors of Iceland er nú komið í þriðju útgáfu, sem var unnin sérstaklega í tilefni af fimm ára afmælinu. Í settinu eru átta vatnslitir, þar af þrír úr íslenskum jarðefnum, og ferðapensill merktur versluninni. Lítið sett sem við höfum lagt mikinn metnað og alúð í.
Við erum enn listamenn sem reka myndlistarvöruverslun og það mótar áfram hvernig við veljum úrvalið. Okkur langar að vita hvað efnið gerir, hvernig er að vinna með það og hvað gæti orðið til úr því. Stundum leiðir það til þess að ný vara birtist í hillunni. Stundum leiðir það til mjög langs samtals um ákveðinn bláan lit.
Sum ykkar hafa verið með okkur allt frá vörulistadögunum. Sum komu í stofuna eða á vinnustofuna okkar. Sum náðu að versla á þessum tveimur klukkustundum síðdegis og sum biðu fyrir utan þetta desemberkvöld. Önnur hafa aðeins nýlega fundið okkur á Hrísateigi.
Saman hafið þið gefið okkur kjarkinn til að halda áfram, kynna ný og ókunn efni og búa til pláss fyrir meira.
Þér er boðið
Komdu í kaffi
og kökusneið
Við höldum upp á fimm ára afmælið 24.–25. október og okkur þætti vænt um að sjá þig hjá okkur að Hrísateigi 47.
Það verður boðið upp á kökur, kaffi, happdrætti fyrir viðskiptavini og 20% afslátt af nánast öllu í versluninni.
Takk fyrir hverja heimsókn, fyrir að segja vinum frá okkur og fyrir hvert verkefni sem við höfum fengið að eiga lítinn þátt í.
Myndlistarvöruverslunin · 5 ára
Kökur · Kaffi · Happdrætti