Myndlistarvöruverslunin artsupplies.is
Grafít og vatn - gjafasett
Grafít og vatn - gjafasett
Couldn't load pickup availability
Grafít og vatn
Frá fíngerðum línum til djúpra skugga. Með vatnsleysanlegu grafíti og blautum pensli geturðu unnið teikninguna áfram, mýkt útlínur og látið gráa tóna flæða um pappírinn.
Við höfum sett saman þrjár vörur sem fara vel saman: vatnsleysanlegt grafít frá portúgalska framleiðandanum Viarco, LIND vatnslitapensilinn okkar og Leporello skissubók frá Fabriano. Einfalt sett fyrir skissur, landslag, ljós og skugga.
Í settinu er:
-
ArtGraf vatnsleysanlegt grafít, 20 eða 60 g. Taktu grafítið upp úr dósinni með rökum pensli. Með litlu vatni færðu dökka, þétta tóna en meira vatn gefur ljósari og gegnsærri gráa fleti.
-
LIND pensill, stærð 8 eða 10. Vatnslitapensillinn okkar, framleiddur í Þýskalandi, fyrir bæði smáatriði og stærri fleti.
-
Fabriano Leporello skissubók, 11,5 × 16 cm, 260 g/m². Pappírinn er brotinn saman eins og harmonikka og opnast í langan flöt. Teiknaðu á eina síðu í einu eða láttu myndina halda áfram yfir brotin.
Prófaðu að mála sömu lögun með mismiklu vatni, byggja upp skugga í lögum eða skilja eftir hvíta fleti fyrir birtuna. Einn grár litur býður upp á ótal blæbrigði.
Falleg gjöf handa þeim sem hafa gaman af að teikna, vilja prófa nýja tækni eða taka skissubókina með sér út.
Veldu þína útgáfu: 20 eða 60 g af ArtGraf grafíti og LIND pensil í stærð 8 eða 10. Allar útgáfur innihalda sömu hvítu Fabriano Leporello skissubókina með 20 blaðsíðum.
Share
