PAR
Cyanotype póstkortasett
Cyanotype póstkortasett
Couldn't load pickup availability
Búðu til eigin cyanotype póstkort með sólarljósi með þessu litla DIY setti frá PAR.
Settið er einföld og skemmtileg kynning á sögulegri ljósmyndaprentunaraðferð þar sem ljósnæmur vatnslitapappír breytist í blá-hvít prent með hjálp dagsljóss eða UV-ljóss. Raðaðu plöntum, hlutum, teikningum eða prentuðum negatífum ofan á póstkortin, lýstu þau í sólarljósi og skolaðu til að kalla fram myndina.
Útkoman er einstök cyanotype mynd í djúpum bláum tónum - fullkomin sem persónuleg póstkort, lítil listaverk, gjöf eða skapandi minning úr sumrinu.
Settið sameinar handverk, ljósmyndun og einfalda efnafræði á aðgengilegan hátt og hentar vel fyrir listafólk, áhugafólk, skapandi fjölskylduverkefni og alla sem vilja prófa analogue ljósmyndaprentun í litlu og fallegu formi.
Innihald
- 2 flöskur, 20 ml hvor, af cyanotype lausn tilbúinni til blöndunar
- 12 póstkort úr vatnslitapappír, 10 × 15 cm
- Hanskar
- Svamppensill
- Ferhyrndur skolbakki
- 30 ml mæliglas
- Blöndunarskál
- Hræripinni
- Skref-fyrir-skref leiðbeiningar á ensku, þýsku, frönsku og hollensku
Share
