Daniel Smith
DANIEL SMITH Extra Fine vatnslitir 15 ml
DANIEL SMITH Extra Fine vatnslitir 15 ml
Ekki tókst að sækja upplýsingar um afhendingu í verslun
DANIEL SMITH Extra Fine eru vandaðir vatnslitir í 15 ml túpum. Í úrvalinu hjá okkur eru fimm Lunar-litir með áberandi kornun og Lavender, mjúkur bláfjólublár litur sem margir vatnslitamálarar hafa beðið eftir.
Lunar Black, Lunar Earth, Lunar Red Rock, Lunar Violet og Lunar Blue bjóða upp á lifandi áferð þegar litarefnin setjast í ójöfnur pappírsins. Þeir henta vel fyrir landslag, hraun, kletta og veðraða fleti, bæði einir sér og í blöndu við aðra vatnsliti.
Lavender er ljós bláfjólublár litur með fallegri kornun. Hann er sérstaklega fallegur í blómum, köldum skuggum og fölum vetrarhimni og auðvelt er að lyfta honum af pappírnum.
Vatnsmagn og yfirborð pappírsins hafa áhrif á áferðina, svo það er tilvalið að prófa litina bæði í þunnum litlögum og á blautum pappír. Veldu lit úr fellilistanum; hver túpa inniheldur 15 ml.
Share






