Skip to product information
1 af 1

MOLOTOW

MOLOTOW SKETCHER tússlitir í setti - MAIN KIT 1 - 12 stk.

MOLOTOW SKETCHER tússlitir í setti - MAIN KIT 1 - 12 stk.

Söluverð 10,999 ISK
Söluverð Útsöluverð 10,999 ISK
Sale Uppselt
Skattur innifalinn. Shipping calculated at checkout.
Magn

Ríkir litir, mjúkar pensilstrokur og skarpar línur. SKETCHER tússlitirnir frá MOLOTOW gefa þér svigrúm til að vinna hugmyndir, prófa litasamsetningar og útfæra teikningar á pappír. Hver túss er með pensiloddi og skásettum oddi, svo auðvelt er að skipta á milli fínlegra stroka og breiðra litaflata.

Í settinu eru 12 tússlitir í vandaðri, þríhyrndri öskju sem tekur mið af lögun tússanna og nýtist vel til geymslu. Sjö ólíkar litasamsetningar eru í boði, allt frá sterkum, mettuðum litum og ljósari eða dekkri afbrigðum þeirra yfir í gráa tóna, pastelliti og liti fyrir persónuteikningar.

AquaPro blekið er vatnsleysanlegt, lyktarlaust og litsterkt. Það flæðir jafnt úr oddinum og þornar hratt, sem kemur sér vel við skissuvinnu, myndskreytingar og litun. Þríhyrnd lögunin og hrjúft yfirborðið veita gott grip og tússarnir liggja þægilega í hendi.

Helstu eiginleikar:

  • 12 tvíodda tússlitir í handhægri geymsluöskju.
  • Pensiloddur og 2 til 5 mm skásettur oddur.
  • Litsterkt AquaPro blek á vatnsgrunni.
  • Þornar hratt og smitast lítið eftir þornun.
  • Gott þol gegn útfjólubláu ljósi.
  • Henta fyrir skissur, myndskreytingar, tækniteikningar og litun á pappír.
  • Má nota með MOLOTOW BLACKLINER.
  • Litamerkt lok auðvelda þér að finna rétta litinn.
  • Framleiddir í Þýskalandi.

Skiptu um litahylki og haltu áfram að teikna

SKETCHER er hannaður til áframhaldandi notkunar. Þegar liturinn klárast skiptirðu um litahylki og heldur tússinum. Einnig má skipta um odda og velja á milli pensilodds, skásetts odds og 1 mm hringlaga odds. Í SKETCHER línunni eru 120 litatónar sem gefa fjölbreytta möguleika á að setja saman þína eigin liti og odda.

Litahylkin eru úr 95% endurunnu plasti og bolur tússins úr 92% endurunnu plasti. Með því að kaupa nýtt litahylki í stað heils túss má spara allt að 56% af plastinu, eða um 10,6 grömm í hvert skipti.

 

View full details